stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þetta tækifæri til að eiga orðastað við hv. þingmann um einmitt þessa þætti. Fjölþáttaógnir eru viðvarandi ógn, viðvarandi vandamál sem við þurfum að glíma við. Þetta er auðvitað bara nátengt því mikilvæga verkefni að við höfum stjórn á öllum megingögnum íslenskra stjórnvalda, komi til þess að landið verði undir einhverjum kringumstæðum sambandslaust, netsambandslaust við umheiminn. Þess vegna vil ég bara brýna þingmanninn og þingmenn almennt, þar sem ég er varaþingmaður og stoppa hér stutt við, að missa ekki sjónar á því. Það skiptir mjög miklu máli og þá á ég fyrst og fremst við að þær skýjaþjónustur sem við hér á landi nýtum að stærstum hluta eru, að ég held, vistaðar erlendis. Það kann að vera að við getum útbúið slíka umgjörð og tryggt slík gögn en það kann líka vel að vera að mat okkar, áhættumat okkar, geri það að verkum að við verðum, íslensk stjórnvöld og þar af leiðandi kannski einhverjir ákveðnir angar okkar mikilvægustu innviða, að koma því þannig fyrir að öll gögn séu vistuð hérlendis. Það vill nú bara þannig til að við erum með ansi öflug gagnaver hér á landi.
En ég vildi bara brýna þingmanninn hvað þetta varðar og spyrja hann hvort hann sé tilbúinn til að takast á hendur þá vegferð ásamt eflaust mörgum þingmönnum hér í þingsal sem láta sig þjóðaröryggi varða.