156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[18:16]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa góðu umræðu okkar. Það dýpkar einmitt þetta heildarsamhengi sem við erum að tala um hér, þetta er orðið svo fjölbreytt eftir að okkar stafræni heimur kom, hann lætur ekkert ósnert, hvort sem það eru samskipti okkar á milli, viðskipti okkar á milli og hvar peningarnir okkar eru geymdir og ævisparnaðurinn og að við getum sótt nauðsynjavörur. Þá skiptir líka svo miklu máli, eins og hv. þingmaður kom inn á, að sem mest af gögnunum og vinnslunni sé hér á landi, sé ekki bara í skýinu í einhverju öðru landi, þ.e. þó að það sé í einhverju skýi þá sé það ský hér á Íslandi. Það skiptir miklu máli. Eiginlega öll gögn er varða heilbrigðiskerfið og lyfjanotkun okkar eru hér á landi en auðkennislykilinn til að komast inn á það er í skýinu og ekki hér á landi þannig að það getur vel verið að þú komist ekki að þeim. Það er að mörgu að hyggja í þessu og heiti ég hv. þingmanni því að ég mun gera allt sem ég get gert til að efla þjóðaröryggi og öll þessi mál. Allt þetta öryggi og annað kostar meira og meira og það er mikilvægt að við gerum þetta rétt og förum hagkvæmustu leiðina og notum fjármunina frekar til þess að auka öryggi heldur en að það verði einhver sóun út af því að við höfum reglurnar ekki réttar eða skipuleggjum þetta ekki rétt.

Í lokin á þessu andsvari vil ég bara segja það (Forseti hringir.) að þetta snýst um að við höfum næga orku hérna þannig að við getum byggt gagnaver hér á landi, höfum meiri geymslu- og reiknigetu hér á landi, það er gríðarlega mikilvægt, og gott fjarskiptasamband um allt land.