156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[18:18]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langaði bara að koma hingað upp og í örstuttu máli ræða um þetta ágæta mál sem er hér í dag sem fjallar um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar. Ég skal alveg upplýsa þingheim strax um það að ég er ekki sérfræðingur í þessu máli en hlakka til að taka það til umræðu þegar það kemur inn í efnahags- og viðskiptanefnd. En það sem ég hef kannski sérstakan áhuga á í þessu máli er í raun og veru sá hlutur sem í raun og veru frumvarpið snýr að einhverju leyti að sem er staða Íslands varðandi þessar fjölþáttaógnir og hvernig við stöndum hvað varðar þær. Þetta frumvarp sem við erum með hér fyrir framan okkur gengur út á þessar DORA-reglur tvær sem voru samþykktar 2022 og 2025 hjá aðildarríkjum Evrópusambandsins og eru í raun og veru að taka á þessu. Þetta er náttúrlega innleiðingarmál eins og þingheimur veit en ég held að það sé mikilvægt að við förum þessa vegferð og tökum þetta upp hér vegna þess að þetta skiptir okkur verulegu máli. Við höfum bara horft á það síðustu ár, bæði hér á landi og eins í kringum okkur, að netárásir og árásir á netkerfi eru alltaf að verða stærri og að verða stærra tæki hópa og einstakra ríkja til að koma höggi á fyrirtæki og önnur ríki. Þess vegna skiptir okkur verulegu máli hér á Íslandi að við séum með gott kerfi og góða umgjörð í kringum okkar netöryggismál.

Þetta DORA-hugtak, stafrænar rekstrarreglur, viðnámsþróttur í forgrunni, eða til einföldunar stafrænn viðnámsþróttur, er skilgreint sem geta aðila á fjármálamarkaði til þess að byggja upp, viðhalda og endurmeta heilleika eða áreiðanleika í rekstri með því að tryggja, hvort heldur beint, eða óbeint með notkun upplýsinga og fjarskiptaþjónustu þriðja aðila, alla þá getu sem tengist upplýsinga- og fjarskiptatækni sem þarf til að tryggja öryggi net- og upplýsingakerfa sem aðilar á fjármálamarkaði nota og styður við samfellda fjármálaþjónustu og gæði hennar, þar með talið meðan röskun varir. Þarna er í raun og veru kjarninn. Það þarf ekkert að hafa mörg orð um það, virðulegur forseti, hér í þessum sal hvað það myndi þýða fyrir okkur ef þessir markaðir hér á landi yrðu fyrir höggi, tala nú ekki um verulegu höggi, að þetta myndi lama hjá okkur kerfi til lengri eða skemmri tíma og setja í raun og veru allt á hliðina. Við höfum séð þetta þegar þessar árásir hafa verið gerðar á þessi fyrirtæki, þær eru misstórar og misalvarlegar en þær hafa sett í raun og veru allt hér á hliðina. Við þurfum ekkert að fara langt aftur í tímann til þess að muna eftir því þegar net Alþingis var sett í frost og við þjóðkjörnir fulltrúar komumst ekki hér á net, inn á heimasvæðið okkar, og heimasíða Alþingis lá niðri einmitt vegna þess að árás var gerð á hana. Ég verð að segja, virðulegur forseti, að mér fannst sú umræða sem varð í kringum þá árás ekki hljóta nægilega mikla umræðu, hvorki hér á Alþingi né í fjölmiðlum, vegna þess að þarna var um gríðarlega alvarlegan atburð að ræða þegar ráðist er á þjóðþingið með þessum hætti.

Við þurfum að leita allra leiða, virðulegur forseti, til að finna leiðir til að styrkja þessi kerfi okkar og gera þau þannig að þau ráði betur við ef slíkar árásir eru gerðar. Það kemur t.d. fram í þessari ágætu greinargerð með þessu að með innleiðingunni sé t.d. sú skylda á aðilum á fjármálamarkaði að uppfræða starfslið sitt reglubundið um netöryggi og hættur og viðbrögð, hvernig menn eigi að bregðast við ef slík ógn kemur upp. Þannig að ég bara fagna því að þetta sé hér komið inn. Ég veit að þetta er mikilvægt mál, þetta er risastórt mál þó að kannski fari ekki mikið fyrir því svona við fyrstu sýn en skiptir okkur máli. Ég hlakka til að fá tækifæri til að fara aðeins yfir málið í efnahags- og viðskiptanefnd en bara ítreka mikilvægi þess og vona að umræðan í nefndinni verði góð.