156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[18:25]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir að halda uppi góðri umræðu um þessi mál í dag. Að sönnu er stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaða eitthvað sem við þurfum öll að láta okkur varða og ég held að margt komi inn í það. Í því sambandi nefni ég að hér á eftir er hæstv. fjármálaráðherra að mæla fyrir breytingum um sýndareignir á Íslandi og ég held að þetta fléttist nú töluvert saman, þessi heildarmynd stafrænna innviða í fjármálum á Íslandi. Á þessum síðustu og verstu tímum er tæknin að teiknast þannig upp að hún verður náttúrlega, held ég, öllum almenningi að einhvers konar svartagaldri í grunninn þegar maður lítur á heildarmyndina. Maður er kominn með tækni sem almenningur er löngu hættur að geta skilið í grunninn og þetta er orðið mjög þróað og tækninni fleygir áfram í þessum málum.

Tækninni fleygir sannarlega áfram í fjártækni og ég fjallaði um það nýverið, vísaði þar í afar forvitnileg ummæli bankastjóra Arion banka, Benedikts Gíslasonar, þar sem hann fjallaði um það á málþingi á vegum Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu að eins og hann mæti stöðuna, og nú vísa ég bara óbeint í hann og ekki rétt að taka mig fyrir því sem hann sagði, en hann lýsti því þannig að bankaþjónusta væri að fara að taka slíkum breytingum á næstu fimm eða tíu árum að eins og ég skildi þetta yrði bankaþjónusta að mörgu leyti alveg óþekkjanleg frá því sem nú er, þ.e. þessar gömlu „vörur“ bankanna, þessi hefðbundna þjónusta, hvort sem það er í lánastarfsemi, útlánastarfsemi, innlánastarfsemi, þetta sem hefur alltaf verið grundvöllur viðskiptabanka mun taka miklum breytingum og vörurnar taka miklum breytingum og þetta byggist núna í sífellt auknum mæli á stafrænum innviðum, alls konar öppum, forritum og bankarnir eru að mörgu leyti, eins og gerist í mörgum iðnaði, að þróast í að verða ekki aðeins bankar heldur einfaldlega hugbúnaðarhús. Á tímum þar sem tækninni fleygir áfram með svona hröðum hætti þá teljum við mikilvægt að stjórnvöld varist það vegna þess að það er einmitt á þessum skurðpunkti nýrrar tækni og gamallar tækni sem mistökin geta orðið af hálfu stjórnvalda, þ.e. að stjórnvöld fari of geyst fram í hvers kyns regluvæðingu gagnvart nýmælum, að þau endi á að kæfa niður viðleitni til nýsköpunar inni í nýjum greinum.

Ég hef sömuleiðis fjallað opinberlega um að ég hef staðfest dæmi af því innan úr — t.d. vegna þess að hér á að ræða sýndareignir á eftir — rafmyntageiranum á Íslandi þar sem erlendir aðilar, verulega umsvifamiklir og metnaðarfullar erlendir aðilar, höfðu hug á að koma hingað til Íslands með afar spennandi verkefni og afar spennandi fjárfestingu og það var til skoðunar að í raun og veru byggja verkefnið upp á Íslandi frekar en að byggja það upp óbeint á Íslandi eins og niðurstaðan varð, en það kom fljótt í ljós í athugun sérfræðinga á vegum þessara aðila, þessara fjárfestingaraðila á sviði rafmynta, svona bitcoin-fólks, að Ísland væri ekki tækur staður fyrir svona starfsemi út frá því í fyrsta lagi að óljóst og óaðgengilegt regluverk gilti á sviði rafmynta. Og það er svo sem bara mjög algengt í öllum ríkjum og það er þekkt innan rafmyntabransans að regluverkið kann sums staðar hreinlega ekki að skilgreina hvað rafmynt er, að skilgreina hvað bitcoin er. Ef kerfið getur það ekki þá er náttúrlega alls ekki einfalt að ná utan um það með regluverki. En niðurstaða þessara fjárfesta og niðurstaða þessara aðila var sú að það þótti ekki tækt að koma sér fyrir á Íslandi vegna óvissunnar sem nú þegar ríkti í lögum gagnvart fyrirbærinu en einnig þess að yfirvofandi eru reglugerðir frá Evrópusambandinu á þessu sviði. Maður hefur ekki fundið á sér að t.d. hæstv. fjármálaráðherra úr Viðreisnarflokknum og fleiri fulltrúar þess flokks, og Samfylkingar sömuleiðis — maður hefur ekki fundið á sér að þar ríki einhvers konar sjálfstæð afstaða til þess að mæta því af fullum þunga þegar hér rekur á Íslands strendur hvers kyns reglugerðarbákn og ástæða væri til fyrir íslenska stjórnmálamenn að segja: Heyrðu, við þurfum að taka þetta mjög föstum tökum gagnvart því hvernig við innleiðum þetta hér. Maður hefur ekki fundið fyrir því að það sé styrkur vilji til slíkrar hagsmunagæslu og það er auðvitað hugmyndafræðilegt og það er pólitískt mat hverju sinni að menn vilji ekki nálgast málin af festu fyrir hönd Íslands heldur sé frekar ríkjandi svona, þannig að maður segi það, ákveðin undirgefni við það sem frá þeim kemur þarna í Brussel.

Í þessu sambandi finnst mér vert að draga það fram þegar við erum að ræða stafræna innviði fjártækni hérna á Íslandi sem og fjármála, sömuleiðis þegar við erum að ræða þennan flokk sýndareigna sem hér verður til umræðu á eftir, ef okkur auðnast að klára þessa umræðu, sem ég tel líka bara eðlilegt að við gerum, vegna þess að hér hafa málin verið rædd býsna vel — ég efast reyndar ekki um að margir muni vilja leggja orð í belg ef þeim sýnist svo en engu að síður þá held ég að við þurfum að taka inn í þessa umræðu að við getum ekki á Íslandi bæði á vissan hátt étið kökuna og átt kökuna. Við þurfum að gera markvissar ráðstafanir til að svona iðnaður þrífist hér á Íslandi ef við tölum t.d. um rafmyntir, ef við tölum um bitcoin, sem er sannarlega umdeild tækni. En maður hefur aðeins kynnt sér þetta fyrirbæri í gegnum árin og auðvitað þekkir maður þessar háværu efasemdaraddir um framtíðargildi rafmyntarinnar bitcoin. Ég þekki þær umræður mjög vel og það getur enginn slegið því föstu hvað verður í framtíðinni með þetta. En það sem liggur fyrir er að þetta er nýstárleg tækni. Þetta býður upp á milliliðalaus viðskipti manna á milli án bankastofnana og annars eins. Þetta býður upp á töluvert öryggi í færslum manna á milli, þetta heldur á vissan hátt gildi þó að sannarlega sé verðgildi frá degi til dags mismunandi og verðgildi er alltaf háð eftirspurnarfyrirbærinu, en á einhvern hátt telja margir að þetta geti varðveitt gildi og varðveitt einhvers konar verðgildi yfir lengri tíma. Þetta líkist á margan hátt peningum. Þetta hefur ekki alla eiginleika hefðbundinna þjóðargjaldmiðla eins og við þekkjum þá og eins og við höfum vanist þeim. Þjóðargjaldmiðlar eru á endanum undir stjórn seðlabankanna á meðan bitcoin er það ekki.

Ég held að það megi alveg hafa ríkan skilning á því að fólk sjái svona fyrirbæri eins og bitcoin og hugsi: Hvað í ósköpunum er þetta? Þetta vil ég ekki sjá, þessu mun ég aldrei fjárfesta í, Íslendingar eiga ekki að koma nálægt þessu. Ég skil alveg þessi fyrstu viðbrögð, þau eru mjög skiljanleg en ég tel samt að það sé ekkert óeðlilegt t.d. að hæstv. fjármálaráðherra og yfirvöld allra peningamála á Íslandi nálgist svona tæknibreytingar með opnum hug þótt ekki væri nema bara fyrir þær sakir að vera ekki dæmdir illa af sögunni ef menn tala af þekkingarleysi og fordómum um nýja tækni. Það eru mörg dæmi í sögunni um alls konar ummæli sem fallið hafa þegar ný tækni er að rísa upp sem eldast svo mjög misvel. Með því er ég ekki að segja neitt um framtíð bitcoin sem rafmyntar. Ég veit í raun og veru ekkert um það, ekki frekar en nokkur annar maður. En þetta er afar áhugavert og ég tel og ég óttast — af því við erum að ræða um sýndareignir hérna síðar líka — auðvitað að fordómar ráði för í umræðunni og maður hefur sannarlega orðið var við það, hvort sem það er í umfjöllun viðskiptamiðlanna eða einmitt fulltrúa Seðlabankans jafnvel sem tala af töluverðum fordómum um nýja tækni og ég veit ekki alveg hvaðan þeir fordómar koma vegna þess að það er margt sem lofar góðu við þessa tækni. Það þýðir ekki að maður samþykki allt eða alla eiginleika hennar eða geti ekki haft ákveðnar réttmætar áhyggjur af ýmsum þáttum í þessu. Á móti kemur mjög stór hópur og líklega sífellt vaxandi hópur á Íslandi sem lítur á þetta sem tæki til þess að leysa mörg vandamál í okkar samfélagi, t.d. sífellt vaxandi, því miður, ákveðna tortryggni meðal fólks gagnvart fjármálastofnunum og annað eins. Auðvitað viljum hafa traust á fjármálastofnunum. Hjá sumum tekst það ekki og þeir þá leita frekar í þetta þar sem þeir hafa fullkomna stjórn á eigin fjármunum í gegnum bitcoin.

Það sem ég ítreka enn og aftur að ég óttast hér á Íslandi er að mögulega muni menn sitja eftir með sárt ennið þegar fram líður og hugsa að — og ekki að maður sé sérlegur hvatamaður stórtækrar fjárfestingar í þessu á vegum stjórnvalda. Ég veit ekkert hvernig það gæti litið út en það eru dæmi um það úti í heimi, held ég, að ýmiss konar meiri háttar fjárfestingaraðilar horfi til þessa málaflokks og horfi til þessa eignaflokks. Það má alveg nefna að hér hafa á Íslandi orðið til stöndug fjárfestingarfélög í kringum þessa starfsemi, m.a. Viska digital assets, en þar hafa menn verið að fjárfesta í rafmyntum með gífurlegum — eða gífurlegum, ég veit ekki hvort við gætum notað orðið gífurlegum en prýðilegri og ágætri ávöxtun í gegnum árin og oft betri ávöxtun en í öðrum eignaflokkum, þannig að ég held að á vissan hátt sé svolítið undarlegt árið 2025 að mæta þessu af fullkomnum fordómum og skeytingarleysi. Ég held að það sé alveg eins ástæða fyrir menn að nálgast þetta með opnum hug og að mörgu leyti kann þetta að vera þróun sem þú getur afneitað og afneitað þangað til þú verður að stökkva um borð að einhverju leyti. Það er það sem margir benda á en ég fullyrði það ekki. Ég veit ekki alveg nógu mikið til þess að taka að mér spádómshlutverk í þessu máli, alls ekki, en ég held samt að það sé ákveðin hætta á að það verði til ákveðnir pólitískir fordómar fyrir t.d. rafmyntum af því við erum að ræða sýndareignir og það er það sem við erum að ræða um þegar við ræðum sýndareignir. Það eru glænýir tæknilegir möguleikar sem voru hreinlega ekki til hérna fyrir 10, 15, 20 árum.

Þegar svona myndast er löggjafinn alltaf lengi að taka við sér og ég segi að við þurfum að nálgast það með opnum hug. Getur þetta verið sérstaða fyrir Ísland, að sækja fram á nýju tæknilegu sviði? Við erum með hreina orku, við höfum kost á því að vera með gagnaver. Það hefur verið talað mjög niður til þessa iðnaðar þótt að mörgu leyti mætti halda því fram að hann hafi reynst tiltölulega ágætur kúnni í gagnaverunum af því sem ég hef heyrt þó að maður fullyrði það ekki heldur. Það eru einhverjir svona undirliggjandi óljósir fordómar og ég held ekki að við þurfum að hafa þá fordóma. Við þurfum ekkert heldur að gerast ofsatrúarmenn. Þeir eru til. Ég þekki nokkra ofsatrúarmenn á þetta fyrirbæri og þeir lifa sínu lífi, það er trúfrelsi á Íslandi. En stjórnvöld þurfa sannarlega að huga að því að hugsa: Nú er 2025 og dagurinn í dag er bara fyrsti dagurinn af restinni af lífi okkur, þ.e. framtíðartækifærin — þótt við stöndum mjög vel í þessum stoðgreinum, hvort sem það er sjávarútvegur, ferðaþjónusta, iðnaður eða útflutningsgreinarnar okkar, þá þurfum við að halda áfram að sækja fram. Við þurfum að halda áfram að fjárfesta í hátækniiðnaði, hátæknigreinum. Við verðum að miða við þessa framleiðni þegar við erum að horfa í framtíðina.

Þess vegna skiptir máli öll umgjörð þessara mála sem við erum að taka til umræðu hérna, þessi umgjörð verður að vera þannig að hún hvetja okkur til dáða í nýrri tækni en segi ekki: Nei, það er eitthvað skrýtið við þetta, við þurfum að regluvæða þetta áður en við gerum nokkuð annað, þetta er hættulegt. Ég held að tæknin sé ekki í sjálfu sér hættuleg og þegar fólk talar um einmitt að þetta auki líkurnar á peningaþvætti og svikum og öðru eins þá held ég að þetta sé að mörgu leyti bara eins og menn hafa bent á að með byssum má bæði drepa og veiða sér til matar. Þetta er verkfæri sem við getum notað til góðs. Ef stjórnvöld ákveða eða yfirvöld peningamála hafa þá afstöðu fyrir fram að vera neikvæð gagnvart svona þá held ég að við getum alla vega alveg verið viss um að við munum ekki njóta góðs af þeim tækifærum sem kynnu að skapast. Við getum líka verið viss um að við komum í veg fyrir allan hugsanlegan mögulegan skaða en við getum líka alveg verið viss um að við munum ekki njóta góðs af þessu. Þegar ég segi að við gætum komið í veg fyrir skaða þá er það ekki einu sinni víst vegna þess að að mörgu leyti halda margir því fram að þetta sé þróun sem er þannig að ef þú tekur ekki þátt í henni snemma þarftu fyrr eða síðar á einhvern hátt að fallast á að þróunin sé orðin þannig að við eigum að hafa opinn hug.

Ég segi það hér að lokum að ég bind vonir við það og ég vona það innilega að hæstv. fjármálaráðherra sé ekki haldinn þessum óljósu fordómum sem ég hef rætt um. Ég held að eitt bitcoin sé eitthvað í kringum 85.000 dollara virði í dag. Sumir segja að raunverulegt virði sé 0 dollarar, þ.e. að þetta sé einskis virði, en aðrir segja að með hverju árinu sem þetta fellur ekki alveg í verði og með hverju árinu sem ekkert hreyfist, með hverju árinu sem þetta örugga kerfi að því er virðist sannar gildi sitt, þá minnki líkurnar á þessu. Og enn og aftur, ég get sagt svona sannfærandi hluti en er samt enginn sérlegur talsmaður fyrirbærisins, þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvað sannfærandi talsmenn fyrirbærisins myndu segja ef þeir kæmu í ræðustól Alþingis.