156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[18:40]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég vil þakka þingmönnum fyrir góða og upplýsandi umræðu um þetta mikilvæga mál sem við getum sagt að snúist að einhverju leyti um stafrænar almannavarnir og er til mikilla framfara og samræmingar. Ég vona að hv. efnahags- og viðskiptanefnd muni taka tillit til þeirra sjónarmiða sem hér hafa komið fram.