156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

markaðir fyrir sýndareignir.

262. mál
[18:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um markaði fyrir sýndareignir. Frumvarpið felur í sér tillögu um innleiðingu í íslenskan rétt á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um markaði fyrir sýndareignir. Með mikilli einföldun má segja að með sýndareignum sé átt við rafmyntir á borð við Bitcoin og annað sambærilegt.

Hér á landi er ekki til heildstæð löggjöf um sýndareignir og er einungis að finna reglur um þær í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Á grundvelli evrópsks regluverks um markaði fyrir sýndareignir stuðlar reglugerðin að skýrari ramma um viðskipti með sýndareignir og eykur neytendavernd. Með reglugerðinni verður þjónustuveitendum sýndareigna jafnframt skylt að starfa á grundvelli starfsleyfis til að geta hafið starfsemi en fram til þessa hafa þeir einungis verið skráningarskyldir á grundvelli fyrrgreindra laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Meginefni frumvarpsins er lögfesting reglugerðarinnar og gerir frumvarpið ráð fyrir nauðsynlegum ákvæðum varðandi lögfestinguna, t.a.m. heimildum Fjármálaeftirlitsins til eftirlits og upplýsingaöflunar, að beita viðurlögum fyrir brot gegn ákvæðum reglugerðarinnar. Þá er ráðherra og Seðlabanka Íslands veitt heimild til að setja stjórnvaldsfyrirmæli.

Forseti. Í tengslum við lögfestinguna er í frumvarpinu einnig mælt fyrir um nauðsynlegar breytingar á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi þar sem starfsemi þjónustuveitenda sýndareigna verður felld undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins. Þá þarf að breyta lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka til samræmis nýjum heildarlögum um markaði fyrir sýndareignir.

Samhliða gildistöku reglugerðarinnar um markaði fyrir sýndareignir tók gildi önnur reglugerð um upplýsingar sem fylgja skulu millifærslum fjármuna og tiltekinna sýndareigna. Sú reglugerð varðar löggjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og kveður m.a. á um skyldur til þjónustuveitenda sýndareigna til að stuðla að rekjanleika millifærslna sýndareigna ásamt nauðsynlegum upplýsingum þeim tengdum.

Hluti efnisreglna þeirrar reglugerðar hefur þegar verið innleiddur í þá löggjöf og er hún á forræði dómsmálaráðuneytisins. Vegna tengsla reglugerðanna tveggja komu ráðuneytin sér saman um að heppilegast væri að ljúka við breytingar á efnisreglum sem af þeirri reglugerð leiðir í þessu frumvarpi.

Frumvarpið mun hafa minni háttar áhrif á eftirlitsgjaldið sem stendur undir starfsemi Fjármálaeftirlitsins en að öðru leyti er ekki gert ráð fyrir teljandi áhrifum á fjárhag ríkissjóðs.

Forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og svo til 2. umræðu hér í þinginu.