markaðir fyrir sýndareignir.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans spurningu. Þróun þessa fyrirbæris eða þessara fyrirbæra á undanförnum árum hefur verið mjög hröð og það er mjög erfitt að segja til um það nákvæmlega hvað framtíðin mun bera í skauti sér varðandi þessar eignir en þó er ljóst að þær hafa að einhverju leyti rutt sér þannig til rúms að þær séu komnar til að vera, alla vega eins og staðan er núna. Eins og hv. þingmaður veit þá er það ekki vandamál íslenska ríkisins hvar á að geyma peningana heldur hvar á að finna þá, svo að á þessum tímapunkti eru svo sem engin plön um neinar slíkar fjárfestingar. Þar sem hefur vakið kannski áhuga markaðsaðila á bitcoin er sá eiginleiki myntarinnar að hreyfast með nokkuð öðrum hætti heldur en aðrar eignir sem getur hjálpað til við áhættudreifingu. En annars er það mál ekkert sérstaklega til skoðunar.