markaðir fyrir sýndareignir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir tiltölulega skýrt svar. Ég hef áhuga á þessum málaflokki og ég hef verið í sambandi við aðila sem hafa verið að vesenast í þessu á ýmsum sviðum og það eru metnaðarfull verkefni, hvort sem þau tengjast alls konar miðlun rafmyntar, nýstárlegri tölvuleikjasmíð og ýmsu sem tengist þessari bálkakeðjutækni sem er grunnurinn að bitcoin-tækninni. Ég hef líka lýst því opinberlega og hér áðan, ég vísa til fyrri ræðu minnar í umræðunni um viðnámsþrótt í fjármálakerfinu þar sem ég fjallaði einnig um sýndareignir og vísaði þar til máls þar sem ég veit til þess að aðilar skoðuðu það af alvöru, þetta voru alvöruaðilar með milljarða í fjárfestingargetu, að hýsa ákveðið verkefni á sviði rafmynta á Íslandi en þeir féllu býsna fljótt frá þeim áformum í ljósi þess hvaða reglugerð blasti við þeim og innan gæsalappa mætti segja að ekki skáni það með þessu ef rétt reynist að þetta sé verulega íþyngjandi. Auðvitað eru reglur nauðsynlegar en þær þurfa að vera aðgengilegar að einhver marki. Hefur hæstv. fjármálaráðherra áhyggjur af þessu, að við gætum verið að fæla frá áhugaverð verkefni á þessu nýstárlega sviði? Ég skil vel að menn þekki það ekki nógu vel og enginn gerir það á þessu stigi, en ég væri til í að fá það fram frá hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi einhverja vissu og hvort hann hafi haft tíma til að setja sig inn í þær flækjur sem eru í evrópska regluverkinu og hvað er að koma hingað. Hefur hæstv. ráðherra haft tíma til að koma sér almennilega inn í þessi mál og getur lagt þetta fram í algjöru trausti þess að hann sé ekki að íþyngja þessari starfsemi á Íslandi?