markaðir fyrir sýndareignir.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans spurningu og skal fyrstur manna viðurkenna að þekking mín á þessu sviði er ekki djúp en get þó sagt af þeirri þekkingu sem ég hef að það er ákall eftir skýrari neytendavernd. Eins og hv. þingmaður veit hefur því miður borið á því, ekki varðandi bitcoin en varðandi aðrar útgáfur á því sem á ensku er kallað, með leyfi forseta, „tokens“, að neytendavernd hefur því miður ekki verið nægileg, Það er auðvitað örugg leið til þess að eyðileggja fyrir einum iðnaði að gæta ekki að neytendavernd vegna þess að það á endanum grefur undan trausti almennings á því sem viðskiptin snúast um, sem því miður er farið að eiga sér stað í nágrannalöndunum. Það hefur auðvitað verið gröftur eftir rafmyntum á Íslandi og þannig eru, getum við sagt, þessar sýndareignir orðnar og hafa verið hluti af íslenska hagkerfinu. Markmið þessara reglna er að gæta að þessari neytendavernd fyrst og síðast. Ég hygg að ég og hv. þingmaður getum verið sammála um að í viðskiptum með eignir eins og þessar er traust grundvallaratriði.