156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

minningarorð um Friðrik Ólafsson.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Hv. alþingismenn. Síðastliðinn föstudag, þann 4. apríl, andaðist á Landspítalanum Friðrik Ólafsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis. Hann var níræður að aldri.

Friðrik fæddist hér í Reykjavík 26. janúar 1935, lauk stúdentsprófi við MR 1955 og lagaprófi 1968. Á unga aldri komu í ljós fágætir hæfileikar hans á sviði skáklistarinnar og varð hann Íslandsmeistari aðeins 17 ára gamall. Eftir það fór Friðrik marga sigurför við skákborðið á alþjóðlegum mótum og varð fyrsti Íslendingurinn til að öðlast stórmeistaratitil árið 1958. Hann var árum saman atvinnumaður í skák. Árið 1978 var Friðrik kosinn forseti Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, og gegndi því embætti til 1982.

Árið 1984 réðu forsetar Alþingis Friðrik skrifstofustjóra Alþingis og gegndi hann því embætti til ársins 2005 er hann fór á eftirlaun. Friðrik var opinn fyrir framförum. Í hans tíð urðu miklar breytingar á skrifstofunni og þeirri þjónustu sem hún veitir þingmönnum og þingnefndum.

Ljúfmennsku og lipurð Friðriks kunnu þingmenn vel að meta, og raunar þjóðin öll er hann fjallaði um skák á opinberum vettvangi.

Fyrir hönd þingheims og skrifstofu Alþingis sendi ég fjölskyldu Friðriks Ólafssonar samúðarkveðju og færi fram þakkir fyrir störf hans í þágu Alþingis um tveggja áratuga skeið.

Ég bið þingheim að minnast Friðriks Ólafssonar skrifstofustjóra með því að rísa á fætur. — [Þingmenn risu úr sætum.]