varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Sigurður Helgi Pálmason muni verða fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Miðflokksins um að Sigríður Á. Andersen muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Þá hefur borist bréf frá Ragnari Þór Ingólfssyni um að hann verði fjarverandi á næstunni.
Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, Jónas Yngvi Ásgrímsson, en 1. varamaður á lista hefur þegar tekið sæti; 1. varamaður á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Jakob Frímann Magnússon, og 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Marta Wieczorek.
Jakob Frímann Magnússon hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.