afnám samsköttunar hjóna og sambýlisfólks.
Virðulegi forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur lagt fram fjármálaáætlun með verulegum breytingum á tekjuöflun ríkisins. Ég hlakka til umræðu um hana hér á eftir. Meðal annars er lagt til að afnema samsköttun hjóna og sambýlisfólks. Ég hef áður bent á að sú breyting bitni helst á heimilum þar sem annað foreldrið er tímabundið með lægri tekjur vegna náms, veikinda, fæðingarorlofs eða barnauppeldis. Heimilin glíma nú þegar við áskoranir. Húsnæðiskostnaður er hár, matvælaverð í sögulegum hæðum og vaxtastig hefur verið hátt. Í þessu ljósi er áhugavert að hlusta á þau sjónarmið sem komu fram í viðtali við Kristján Inga Mikaelsson í morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Þar sagði hann orðrétt, með leyfi forseta: „Höggin halda áfram að dynja á ungum barnafjölskyldum.“ Hann gagnrýndi að með afnámi samsköttunar væri verið að færa samfélagið frá því að líta á fjölskylduna sem grunneiningu og yfir í að líta á einstaklinga, hvern í sínu horni, sem skattalegar einingar.
Samhliða þessu hefur verið vakin athygli á alvarlegum afleiðingum tollastefnu Bandaríkjanna. Þótt markmið þeirra beinist að stórum efnahagssvæðum er ljóst að þau geta haft keðjuverkandi áhrif á Íslandi. Því spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Af hverju velur ríkisstjórnin að auka álögur á heimili landsins einmitt nú þegar efnahagsleg framtíðarsýn er óviss, alþjóðlegar aðstæður óstöðugar og heimilin þegar undir þrýstingi?