afnám samsköttunar hjóna og sambýlisfólks.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið sem mér finnst nú vera frekar þunnt, því að það er grundvallaratriði í ríkisfjármálum að þjóðin geti treyst því að forsendur standist, að þegar skattar eru hækkaðir eða nýjar álögur kynntar þá liggi fyrir hvers vegna og hvert markmiðið er. En við umræðu um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar virðist þessi einfalda krafa vera lögð til hliðar. Áformin um aukna tekjuöflun eru sett fram án þess að sýnt sé fram á hver áhrifin verða á heimili landsins. Engin gögn fylgja um hvaða hópar bera byrðarnar, aðeins yfirlýsingar um að ríkið þurfi meiri peninga. Það er eins og skattheimta sé orðin markmið í sjálfu sér, ekki tæki til að byggja upp betra samfélag. Þeir sem eiga að greiða meira fá engin svör, ekki um tilganginn, ekki um afleiðingarnar. Þessu til viðbótar liggja enn ekki fyrir nauðsynlegar greiningar og útreikningar sem gera Alþingi kleift að meta áhrifin. Þegar ríkisstjórn leggur fram fjármálaáætlun án fullnægjandi gagna en með fullmótaða áætlun um álögur þá er það ekki aðhald, það er ábyrgðarleysi.
Því spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: (Forseti hringir.) Hvernig getur ríkisstjórn sem kynnti það með hátíðlegum orðum á sínum fyrsta blaðamannafundi að skattar yrðu ekki hækkaðir á almenning réttlætt að fyrsta verkið sé að gera nákvæmlega það? (Forseti hringir.) Almenningur á betra skilið en ríkisstjórn sem segir eitt og gerir síðan hið gagnstæða.