156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

afnám samsköttunar hjóna og sambýlisfólks.

[15:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir hennar ítrekuðu spurningu og tek aftur fram, svo að ég sé alveg skýr, að þessi breyting hefur einungis áhrif í efsta hluta tekjudreifingarinnar, þ.e. það er varla hægt að halda því fram að hér sé um álögur á almenning að ræða. Ég vil síðan rifja upp með hv. þingmanni að fyrir liggur bæði fjármálastefna og fjármálaáætlun sem sýnir að hlutfall tekna ríkisins af vergri landsframleiðslu fellur samfellt allt tímabil fjármálaáætlunar. Það eru ekki skattahækkanir.