samráð í þinginu um öryggis- og varnarmál.
Forseti. Ég hygg að það eigi að starfa býsna þverpólitískt þegar kemur að varnarmálum hér. Ég veit ekki betur en að hæstv. utanríkisráðherra hafi nýlega ákveðið að skipa þverpólitíska nefnd til þess einmitt að fara yfir öryggis- og varnarmálin vegna þess að þótt sú stefnubreyting sem er að eiga sér stað sé vissulega pólitísk í eðli sínu held ég að mjög margir í þessum sal vilji hafa aðkomu. Við erum kannski ekki beint að takast á um öryggi Íslands, hvort við eigum að verja það með ákveðnum hætti, með mismunandi hætti vil ég meina, a.m.k. hafa verið jákvæðar undirtektir þegar kemur að þessari þverpólitísku varnarmálanefnd. En við eigum auðvitað eftir að sjá til með það hvort skiptar skoðanir séu á veru í Atlantshafsbandalaginu eða skiptar skoðanir á tvíhliða varnarsamstarfi við Bandaríkin. Það eru a.m.k. ekki skiptar skoðanir um þetta innan ríkisstjórnarinnar.
Hvað varðar fundinn með Evrópusambandinu þá er mjög ánægjulegt að geta sagt frá því að við munum eiga fund með forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem helsta hagsmunamálið sem rætt verður, sem er risahagsmunamál fyrir Ísland, er staða EES- og EFTA-lands eins og Íslands í þessu tollastríði sem nú gengur yfir. Við erum þar að tryggja okkar hagsmuni. Við höfum auðvitað áhyggjur af því ef tollastríð fer af stað og Evrópusambandið eða aðrar þjóðir leggja á gagnkvæmistolla að við festumst þar á milli. Sú staða hefur komið upp áður. Við höfum mestar áhyggjur, myndi ég segja, til að mynda af álframleiðslunni vegna þess að áður hafa verið settir almennir tollar á ál og stál. Þetta verða grunnskilaboðin og í dag er forsætisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, á svipuðum fundi og við erum að bera saman bækur okkar. Ég átti í síðustu viku samtal við forsætisráðherra Liechtensteins sem fær á sig miklu hærri tolla frá Bandaríkjunum en við og þarna erum við líka að bera saman bækur.