samráð í þinginu um öryggis- og varnarmál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Mér finnst mikilvægt að það sé rætt við þingið áður en lagt er af stað, ólíkt því sem ríkisstjórnin hefur gert til að mynda varðandi veiðigjöldin þar sem var sagt að það ætti að undirbúa stefnu til langrar framtíðar en var byrjað á því að tvöfalda eða að koma hérna fram með fjármálaáætlun og henda henni í þingið og segja bara: Við erum með meiri hluta í þinginu og við getum bara gert það sem okkur sýnist. Þess vegna er mikilvægt að taka þetta samtal hér í þinginu áður en farið er út. Ég er algerlega sammála hæstv. forsætisráðherra í því að það að koma á samstarfi þvert á flokka um varnar- og öryggismál er mikilvægt. En um leið væri það sérkennilegt ef ríkisstjórnin væri nú þegar farin að vinna í einhverja ákveðna átt þegar sú vinna er varla hafin. Hún hófst, held ég ef ég þekki það rétt, fyrir viku og búið að boða til annars fundar núna á miðvikudaginn, sem er gott en það er ekki eins gott ef ríkisstjórnin, miðað við þær yfirlýsingar sem ég hef heyrt einstaka sinnum frá einstaka ráðherrum, (Forseti hringir.) er þegar farin að fara í ákveðna átt áður en við tökum þetta samtal í nefndinni — ekki satt?