samráð í þinginu um öryggis- og varnarmál.
Forseti. Ég fagna bara þessari umræðu. Mér finnst mjög jákvætt ef við getum tekið þverpólitískt samtal um öryggis- og varnarmál í þessum sal. Það væri miður ef á viðsjárverðum tímum við færum að klofna í tvennt eða þrennt. Ég held að það sé aðallega það sem við þurfum þessa dagana, að sýna samstöðu út á við. Það eru gífurlegir hagsmunir undir. Það er enginn að ana að neinu og það eru allar þjóðir heims svolítið að horfa inn á við og skoða stöðuna. Það verða ekki teknar dramatískar ákvarðanir án samráðs við þingið og ég veit að hæstv. utanríkisráðherra er mjög áfram um það. En ég bara ítreka það sem ég sagði áður að það er allt uppi á borðum varðandi aðalatriði þessa samtals. Við erum fyrst og fremst að gæta hagsmuna Íslands. Það er ástæða þessarar ferðar og það er sjálfsagt að upplýsa um hvernig þeir fundir ganga þegar þeir verða yfirstaðnir hérna undir lok viku.