hækkun veiðigjalda.
Hæstv. forsætisráðherra sagði á opnum fundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi 3. maí 2024, með leyfi forseta: „Við erum að tala um það: Getum við komist á tíu ára tímabili nær 20 milljörðum?“ Hæstv. forsætisráðherra sagði einnig á opnum fundi sömu samtaka 9. september 2024, með leyfi forseta:
„Við viljum hækka veiðigjaldið með skynsömum hætti. Við erum ekki að fara að gera það á einni nóttu. Við höfum enga hagsmuni af því að draga úr rekstrargrundvelli sjávarútvegsfyrirtækja.“
Virðulegur forseti. Nú, ekki ári síðar, stendur sami hæstv. forsætisráðherra að máli í krafti ríkisstjórnar sinnar þar sem lagt er til að hækka veiðigjöld á íslenskan sjávarútveg í 20 milljarða á einni nóttu. Þetta er gert án alvörusamráðs, í flýti og án áhrifagreiningar á byggðir landsins og samþættingu veiða og vinnslu, þ.e. án allrar skynsemi. Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hvað gerðist? Hvað breyttist á þessu tæpa ári frá því að hæstv. ráðherra lét þessi orð falla?