156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

hækkun veiðigjalda.

[15:18]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Mér finnst líka mjög mikilvægt hvað þetta hefur fengið góða umræðu í þessum þingsal. Eins og þið sjáið í könnunum sem hafa birst þá eru yfir 90% landsmanna sem telja að sjávarútvegurinn geti greitt hærri veiðigjöld. Pælið í því hvað við getum sammælst um fáa hluti stundum í þessu landi en þó marga mikilvæga og þarna eru yfir 90% landsmanna sem telja að útgerðin geti greitt meira. (Gripið fram í.) Yfir 60% telja þetta vera skynsöm skref.

Hvað varðar mín eigin orð þá hefur alltaf legið fyrir hver stefna Samfylkingarinnar hefur verið í þessu máli undir minni forystu. Ég hef lagt áherslu fyrst og fremst á auðlindarentuna og talað um mikilvægi þess að þjóðin fái hærri skerf úr henni. Í þessu tilviki vill þannig til að það er komið að borðinu með nýja aðferð við að meta undirliggjandi aflaverðmæti sem snýst ekki um hækkun á gjaldinu heldur um að draga fram bara satt og rétt aflaverðmæti. Það vill þannig til í þessu samhengi að það skilar sé sirka í tvöföldun á veiðigjöldum, en það var ekki útgangspunktur þeirra útreikninga. Þegar ég nefni töluna að tvöfalda veiðigjöld þá er ég ekki endilega með þetta á bak við, í huga. Mér finnst fullkomlega eðlilegt að þetta gerist í einhverjum skrefum og þetta er fyrsta skrefið sem hér er tekið. Það er að fá leiðréttingu, og ég ítreka leiðréttingu, á útreikningi á veiðigjöldum. Mér finnst þetta sanngjörn leið að því markmiði. Ég hef ekki áhyggjur af útgerðinni. Það eru rífleg frítekjumörk þarna á. Það er mikill rekstrarhagnaður hjá þessum félögum. Það liggur alveg fyrir að bolmagn þeirra til að eiga við þetta er nægt. En auðvitað skiptir máli hvernig við ræðum um þetta og ég legg bara áherslu á réttindi og skyldur í þessu samfélagi.