156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

hækkun veiðigjalda.

[15:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Þetta voru stórtíðindi. Hæstv. forsætisráðherra upplýsti hér að þessi 100% hækkun á veiðigjaldi sem nú er í pípunum hjá hæstv. ríkisstjórn sé bara fyrsta skrefið. Má þá álykta sem svo að í framhaldinu verði haldið í þá vegferð sem Samfylkingin og hæstv. forsætisráðherra talaði fyrir á fundum landið um kring í aðdraganda kosninga, að frá þeim tímapunkti þegar búið er að tvöfalda veiðigjaldið með þeim hætti sem nú liggur fyrir í frumvarpi hæstv. atvinnuvegaráðherra verði bætt ofan á 10 milljarða hækkun á veiðigjaldi á næstu tíu árum með einhvers lags forsendum skynsemi og samráðs við geirann? Er hæstv. forsætisráðherra raunverulega að upplýsa okkur hér um að það eigi ekki að hækka veiðigjöld úr 10 milljörðum í 20 milljarða á tíu árum heldur í 30 milljarða miðað við núverandi verðmætatölur á tíu ára tímabili; um 10 milljarða yfir nótt í því frumvarpi sem nú liggur fyrir og síðan um aðra 10 milljarða á næstu tíu árum í þrepum?