hækkun veiðigjalda.
Forseti. Nú liggur það fyrir að útreikningur á veiðigjöldum tekur mið af aflaverðmæti. Það tekur mið af því hversu vel gengur að veiða og hvernig markaðsverð er. Ég hef ekki hugmynd um það nákvæmlega hvernig það veiðigjald verður eftir tvö, þrjú, fjögur, fimm ár. (Gripið fram í.) Það sveiflast með stöðunni í geiranum og það getur vel verið að það hækki og það getur vel verið að það lækki. Punkturinn minn í fyrra andsvari var einfaldlega sá að í þessu tilviki er ákveðið að fara þá leið að leiðrétta undirliggjandi aflaverðmæti sem hlýtur að vera risastórt réttlætismál fyrir alla þjóðina. (Gripið fram í.) Það útilokar ekki frekari breytingar, en ekki hvað? Ég veit ekki hversu oft síðasta ríkisstjórn krukkaði í veiðigjöldunum; að auka fyrningu, að tvöfalda fyrningu fyrir vaxtagjöld, frádráttarbærni ýmissa fjárfestingarvara. Það var endalaust verið að fikta í þessu veiðigjaldi og hefur verið gert. Við erum hér að stíga eitt skref. Það er ekkert sem útilokar að það verði einhverjar breytingar í framtíðinni en já, það verður gert í samráði við greinina eins og var gert núna og eins og verður áfram gert.