156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

viðhald og þjónusta í brothættum byggðum.

[15:25]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Varðandi 5,8 milljarða í viðhald og þjónustu þá verður þeim varið á þann hátt sem best er fyrir byggðir landsins. Það sem er búið að gerast á vegum landsins er að umferð hefur aukist stórkostlega og líka orðnir meiri þungaflutningar sem eykur slit á vegum landsins. Þessi peningur mun því fyrst og fremst fara í viðhald og líka til að bæta vetrarþjónustu þar sem þess er þörf. Varðandi viðhald í ár þá verður fundur fljótlega í samráðsnefnd um ríkisfjármál hvað það varðar og vonandi getum við farið í viðhaldsframkvæmdir núna í sumar, þá sérstaklega á Vesturlandi. Ástandið er það slæmt. Ég fór með minnisblað til ríkisstjórnar og það var ákveðið að vísa því til ráðherranefndar um ríkisfjármál. Sá fundur hefur ekki enn verið haldinn og við höfum verið að leggja lokahönd á gögn hvað það varðar til að koma með áætlun um þá staði þar sem þarf að fara í nauðsynlegt viðhald.

Varðandi veiðileyfagjaldið þá fer sá peningur beint í ríkissjóð og þessi fjárhæð sem hv. þingmaður nefndi kemur úr ríkissjóði. Ég tel að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir byggðir landsins og byggðastefnu landsins að við höfum öflugar samgöngur. Það er mikilvægt fyrir búsetuöryggi í landinu og jöfn búsetuskilyrði og við verðum að horfa á það að við erum með á Hvítá-Hvítársvæðinu og Akureyrarsvæðinu hátt í 90% landsmanna. Við verðum að sjá til þess að vegir landsins hjá hinum 10%, stórum hluta landsins, standist nútímakröfur. Það á að vera markmið allra. Við þurfum þjóðarátak í viðhaldi og uppbyggingu vega, jarðganga og uppbyggingu vegasamgangna í landinu.