156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

viðhald og þjónusta í brothættum byggðum.

[15:27]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra, ekki fyrir svörin heldur yfirferðina á samgöngumálum. Ég er sammála hæstv. ráðherra um mikilvægi þeirra og þar er mikilla bóta þörf. Það er líka rétt, og ég tek undir með hæstv. ráðherra, að það eru engir markaðir tekjustofnar. Það er því ekki þannig, eins og hæstv. ríkisstjórn talar, að það eigi að stýra fjármunum úr tekjunum í ákveðin verkefni. Því spyr ég og ítreka við hæstv. ráðherra: Er sem sagt ekki ljóst hvort þær byggðir sem eru að fara að borga hátt í 10 milljarða aukalega í veiðigjöld fái þó þessa 5,8 milljarða, sem er eina aukningin samkvæmt fjármálaáætluninni. Er það ekki að fara að renna til þessara samfélaga aftur, í betri samgöngur, í fyrsta lagi á næsta ári og mun þessi 5,8 milljarða aukning duga til þess að leysa þau verkefni sem hæstv. ráðherra fór yfir að væru svo brýn?