viðhald og þjónusta í brothættum byggðum.
Virðulegur forseti. Það er bóta þörf, sagði hv. þingmaður. Já, það er svo sannarlega bóta þörf og ástandið á vegum landsins er hörmulegt. Af hverju er það? Jú, við vorum með ríkisstjórn í sjö ár sem gerði nákvæmlega ekki neitt. (Gripið fram í.) Hvað voruð þið eiginlega að gera síðustu sjö ár? Það var ekki hugað að vegasamgöngum í landinu, (Gripið fram í.) svo mikið er víst. Ástand veganna skrifast algerlega á reikning síðustu ríkisstjórnar. Þetta er fortíðarvandi síðustu ríkisstjórnar. Við ætlum að bæta í um 5,8 milljörðum, það er það sem við ætlum að gera, til þess að tryggja almennilegt viðhald á vegunum og fara að vinna á viðhaldsskuld, sem er hver? Það er skuldin sem varð til í stjórnartíð síðustu ríkisstjórnar. Við erum að taka við ömurlegu búi þegar við horfum á ástand vega í landinu. Þannig er ástandið. Og varðandi þessar byggðir sem er talað um að séu að borga svokallað veiðigjald þá eru það ekki byggðirnar, það eru sjávarútvegsfyrirtækin sem eru að gera það. Það er tekið af hagnaði þeirra. Það er ekki verið að taka af íbúum byggðanna, svo mikið er víst. (Gripið fram í.) En að sjálfsögðu munum við horfa til þess í vegasamgöngum, viðhaldi og öðru slíku hvar verðmætasköpunin er og styðja við verðmætasköpun í landinu, styðja við aukna verðmætasköpun í landinu, fá kraft í atvinnulífið á landsbyggðinni.