fjallaleiðsögunám á Íslandi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmann kærlega fyrir góða og mikilvæga fyrirspurn. Dómsmálaráðuneytið er auðvitað það ráðuneyti sem fer með öryggismál landsmanna í sínu daglega lífi. Þar undir eru lögregla, þar undir eru almannavarnir, þar undir er landhelgisgæsla og þannig mætti áfram telja. Ég er meðvituð um þessi slys sem hv. þingmaður nefnir og get heils hugar tekið undir að menntun á þessu sviði hljóti að hafa í för með sér forvarnagildi. Það hefur verið lán og gæfa okkar Íslendinga að náttúran hefur kennt okkur það, skilið eftir sig mikla reynslu um það að gæta að öryggi. Ég held að við séum flest þannig innstillt að við berum virðingu fyrir náttúrunni og hennar hættum og fyrir vikið er mikil breidd í okkar reynslu. Ég gæti þar nefnt björgunarsveitirnar líka. En mér finnst þetta fínasta ábending um mikilvægi öryggismála og mun taka þetta til skoðunar.