umræða um öryggis- og varnarmál.
Virðulegi forseti. Í framhaldi af góðri fyrirspurn hv. þm. Sigurðar Inga Jóhannssonar og jákvæðum viðbrögðum hæstv. forsætisráðherra varðandi umræðu hér í þingsal um alþjóðamálin vil ég ítreka þá beiðni sem ég lagði fram hér undir liðnum störfum þingsins á föstudag um að við fengjum samtal við hæstv. utanríkisráðherra. Hæstv. utanríkisráðherra færði okkur munnlega skýrslu 20. febrúar sl. og síðan þá hefur alveg svakalega mikið gerst á alþjóðavettvangi. Ég hef sent þessa beiðni til hæstv. forseta og ég hef skilning á því að hæstv. utanríkisráðherra er erlendis en mikið væri nú mikilvægt fyrir okkur þingheim ef hæstv. forsætisráðherra gæti átt þetta samtal við okkur. Staðan er einfaldlega með þeim hætti að það er ekki við það unað að þingheimur taki ekki samtal um þennan mikilvæga málaflokk fyrr en einhvern tímann í maí. Það er bara of mikið undir í þessum málaflokki. Ég ítreka það sem ég sagði líka hér á föstudaginn: Ég hygg að það sé mikill stuðningur við hæstv. ríkisstjórn í þessum málaflokki en til þess er mikilvægt að við eigum gott samtal hér og svörum spurningum af heilindum.