156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

umræða um öryggis- og varnarmál.

[15:38]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil bara taka undir það sem hér kom fram hjá tveim síðustu hv. þingmönnum. Það verður að segjast eins og er að svona framkoma ríkisstjórnarinnar gagnvart þinginu er farin að einkennast af nokkuð miklum hroka. Það er ekki það sama, virðulegi forseti, að menn segi: Við lýsum yfir stuðningi á þessum erfiðu tímum, t.d. í alþjóðamálum, og það að ráðherrar geti hér farið út um allt og kallað svo til fundar og sagt hvað þeir gerðu. Það er bara ekki það sama. Hér eru viðsjárverðir tímar og það er í mörg horn að líta og það er mjög sérstakt að hæstv. ríkisstjórn sjái ekki ástæðu til þess að eiga meira samtal og samráð við þingið á þessum örlagatímum. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn og forseta til að bæta hér úr því að það er gríðarlega mikilvægt að gæta hagsmuna Íslands núna. Það þurfum við að gera saman og þetta viðhorf hæstv. ríkisstjórnar er ekki boðlegt.