156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Við höldum áfram umræðu um þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Umræðan hófst í síðustu viku og því rétt að rifja upp nokkur atriði.

Fjármálaáætlun, ásamt þeirri fjármálastefnu sem hefur verið lögð fyrir þingið, felur í sér þau meginmarkmið og áherslur sem ríkisstjórnin hefur sett sér til næstu ára.

Forseti. Staðan núna er sú að skuldir ríkissjóðs eru miklar og fara vaxandi verði ekkert að gert. Þetta er það sem blasir við þrátt fyrir góðan vöxt hagkerfisins og auknar tekjur ríkissjóðs á undanförnum árum. Frá þessu ástandi ætlum við að hverfa og ná jafnvægi í fjármálum ríkisins og reka ríkissjóð án halla þegar á árinu 2027 og hið opinbera í heild árið 2028. Sömuleiðis byrjum við þá að draga úr skuldum.

Forseti. Við kynnum til sögunnar nýmæli við gerð þessarar fjármálaáætlunar. Í fyrsta lagi er það ný stöðugleikaregla sem við bætum í regluverkið sem gildir um opinber fjármál. Nýja reglan er mikilvægt verkfæri sem verður beitt til að auka jafnvægi milli efnahagslegs stöðugleika og sjálfbærni opinberra fjármála. Á mannamáli má segja að hún girði fyrir þá freistni stjórnvalda að eyða því sem kemur í kassann á þensluskeiði en búa þess í stað í haginn svo að hægt sé að grípa til viðbragða þegar áföll verða eða verulega harðnar í ári og tekjustofnar dragast saman.

Í öðru lagi er breyting frá fyrri fjármálaáætlun sem felur í sér að mun lengra er gengið í hreinni gerð rammafjárlaga en áður hefur tíðkast. Ríkisstjórnin kom sér saman um almennan útgjaldaramma og tók í framhaldi ákvörðun um hvernig hann skiptist milli einstakra málefnasviða. Það er síðan ráðherra hvers málefnasviðs að ákveða nánari útfærslu síns ramma. Hún birtist svo í fjárlögum að hausti.

Í þriðja lagi höldum við áfram að þróa framsetningu greinargerðarinnar sem fylgir ályktuninni eins og gert hefur verið undanfarin ár, m.a. í samráði við fjárlaganefnd þingsins og ábendingar fjármálaráðs. Um þetta skapaðist umræða í síðustu viku, sem er gott því að framsetning og samspil þrenningarinnar fjármálastefnu, fjármálaáætlunar og fjárlaga skiptir miklu máli. Þrenningin ásamt annarri stefnumótun og gögnum verða m.a. að þjóna þeim tilgangi að Alþingi geti veitt aðhald og að umræða um opinber fjármál verði markviss. Þá er líka mikilvægt að bæði almenningur og fjölmiðlar geti skoðað ítarlega stefnumörkun og borið hana saman við fjárheimildir, forgangsröðun og árangur.

Forseti. Með þessu móti er einstökum ráðherrum fengið aukið svigrúm til að forgangsraða fjármunum til þeirra verkefna sem þeir telja brýnust og eftir atvikum skapast svigrúm fyrir nýjar áherslur með því að draga úr eða hætta öðrum verkefnum í staðinn. Þetta breytta vinnulag er liður í að tryggja aukna festu í fjármálastjórn hins opinbera og ýta um leið undir samfellt endurmat allra verkefna. Staða efnahagsmála og þeir áhrifaþættir sem endurspeglast í háum vöxtum nú um stundir eru eindregin rök fyrir varfærni í ríkisfjármálastefnu. Aðhald í ríkisfjármálum styður beinlínis við lífskjör heimilanna en ekki öfugt.

Forseti. Ástæða er til að minna aftur á að í greinargerð þingsályktunartillögunnar er ítarlega gerð grein fyrir horfum í fjármálum ríkissjóðs og hins opinbera, ráðstöfun á tekju- og gjaldahlið og áhættuþáttum sem varða opinber fjármál. Ég legg til að málinu verði vísað til hv. fjárlaganefndar að lokinni þessari umræðu.