156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:46]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við lifum á sérstökum tímum. Ekki aðeins erum við að sjá viðsjárverðari ský á lofti í alþjóðamálum, mun viðsjárverðari en við höfum séð lengi, en svo erum við hér með hæstv. ríkisstjórn sem ætlar að nálgast hv. Alþingi með allt öðrum hætti en var gert áður. Dæmi: Í fjármálastefnu var skýrt tekið fram að það væru engar skattahækkanir sem hefðu áhrif á almenning. Þrem dögum seinna er niðurstaðan sú: 2.500 millj. kr. skattahækkanir, tekjuskattur á almenning. Og hér hlær hæstv. ráðherra aftur. Hann hefur komið hér upp í ræðustól og hlegið að því að verið sé að hækka skatta á almenning eftir að hafa lofað skriflega að það yrði ekki gert. Það finnst hæstv. ráðherra hlægilegt. Nú útskýrði hæstv. ráðherra í fyrirspurnatíma að þessi almenningur sem þarf að borga 2.500 milljónirnar, það sé bara þannig að almenningur eigi það bara skilið. Hæstv. ríkisstjórn hefur gert nokkuð sem hefur ekki verið gert frá því að lög um opinber fjármál komu fram — af því að lög um opinber fjármál komu ekki úr engu. Það var margra ára undirbúningur. Hér fóru hv. þingmenn til nágrannalandanna, kynntu sér hvernig málin voru, fengu OECD og aðra, og það var alveg skýrt að það var mjög mikilvægt að við þyrftum að hafa betri gögn til grundvallar þegar við værum að taka umræðu um fjármálaáætlun. Nú kemur hæstv. ríkisstjórn og segir: Heyrðu, þið fáið bara ekkert að sjá þetta.

Virðulegur forseti þingsins gerði hið eina rétta að stoppa umræðuna fyrir helgi en nú ætlar hæstv. ríkisstjórn að halda áfram og taka þessa umræðu án þess að upplýsa þing og þjóð um forsendur fjármálaáætlunar. Ég spyr, virðulegi forseti, hæstv. ráðherra: Er þetta ekki helst til mikill valdhroki?