156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:48]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans spurningu. Nú er það þannig að sú breyting sem hér hefur verið kvartað yfir var gerð á síðasta ári og það er fyrst og fremst markmið fjármálaáætlunar að sýna grófu myndina. Nú kannast ég ákaflega illa við að það sé ekki gert í töluvert ítarlegu máli í plaggi sem er upp á um 200 bls. og sýnir nákvæmlega það sem lög um opinber fjármál krefjast. Hvað varðar þær athugasemdir sem hafa komið fram, um að ekki séu útfærslur á áætluninni, þá kannast ég alls ekki við það. Það er markmið áætlunarinnar að sýna grófu myndina, sýna þróun málefnasviða. Hvað varðar síðan áherslur innan málaflokka þá hefur verið rætt um það við þingið og fjárlaganefnd að það eigi frekar heima með ársskýrslum ráðherra og yfir þetta hefur verið farið. Ég er eiginlega orðlaus yfir umræðunni vegna þess að öll þau gögn sem þingmenn þurfa til þess að taka afstöðu til fjármálaáætlunar liggja svo sannarlega fyrir ásamt greiningum á frávikum og áhættu.