fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans ítrekuðu spurningu. Ég skora á þingmenn að kynna sér þessi gögn sem þeir sakna svona mikið sem eru sem sagt greinargerðir fyrir málaflokka, vegna þess að þessar greinargerðir hafa að mestu verið óbreyttar orðrétt ár eftir ár, þ.e. ekki innihaldið neinar upplýsingar. Allar þær upplýsingar sem skipta máli hafa komið varðandi málefnasviðin. Þau eru enn þá inni í áætluninni ásamt öllum meiri háttar tölum. Ég skora á hv. þingmann og aðra þingmenn að kynna sér hvaða gögn þetta eru sem þeir sakna svona.