156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:53]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er áhugaverð umræða. Ég vildi byrja á því að spyrja hæstv. fjármálaráðherra — ég tók hér umræðu við hann í sérstakri umræðu fyrir mánuði um hvort ekki væri eðlilegt að hefja heildarendurskoðun vegna tíu ára afmælis laganna áður en menn fara að hræra í breytingum eins og með einhverjum breytingum á verklagi eða að taka upp stöðugleikareglu án þess að fara í heildarendurskoðun og átta sig á því: Hvernig virkaði hún fyrir þingið og eftirlitshlutverk þingsins? Hvernig virkaði hún fyrir almenning? Hvernig virkaði hún fyrir stofnanir ríkisins? Ég vil spyrja hæstv. ráðherra að því.

Í síðustu viku vakti Stefán Vagn Stefánsson, hv. þingmaður og fulltrúi okkar Framsóknar í fjárlaganefnd, athygli á þeirri staðreynd, hæstv. fjármálaráðherra, að það eru engin markmið og töluleg gögn til staðar í þessari áætlun eins og var í fyrra. Þó að hún væri með breyttu verklagi og hafi verið á netinu þá eru þau ekki þar núna. Ef þú ferð þar inn þá er verið að vinna í þeim greiningum þarna inni. Þannig að þar sem nánast engin markmið og mælikvarðar koma fram á þessum málefnasviðum — og það voru talsverð tíðindi sem ég heyrði hæstv. ráðherra segja hérna, að það væri bara óbreytt ár eftir ár. Er það þá þannig að þau markmið sem komu fram í síðustu áætlun, 2025–2029 — er þá ætlunin að halda sig við þau markmið? Og hvernig passar það við nýja útgjaldaáætlun nýrrar ríkisstjórnar? Og hvernig rímar það við málflutning ríkisstjórnarinnar um að allt hafi verið ómögulegt ef það á að halda sig við þau markmið? Og hvað var í raun kynnt fyrir þinginu? Var það einhvern tímann kynnt fyrir þinginu eða fjárlaganefnd að markmið og mælikvarðar myndu ekki verða hluti af fjármálaáætlun 2026–2030? Var það sagt með skýrum hætti? Ég held að svarið sé nei. Ég veit að svarið er nei. Og ef ekki, sem er þannig, telur ráðherra og ríkisstjórn þetta í samræmi við góða stjórnsýsluhætti og gegnsæi gagnvart Alþingi? Og hvernig á Alþingi að vinna með þessi gögn? Er ráðherra sammála því sem kemur fram í greinargerð um 5. og 10. gr. laga um opinber fjármál? (Forseti hringir.) Ef hann er það, af hverju eru þá markmiðin ekki til staðar? Og hvernig myndi hæstv. fjármálaráðherra sjálfur (Forseti hringir.) meta stefnu sem hefur engin markmið?