fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir spurningu og ég er nú raunar, í lýsingu minni á þessum gögnum sem voru um þróun málaflokka og mælikvarða, að vitna til gagna sem koma frá ríkisstjórn sem hann sat í sjálfur en ekki þeirri sem nú situr. Hann víkur að því hvernig þetta fyrirkomulag hafi reynst og ég ætla að leyfa mér að taka undir orð hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar að þetta fyrirkomulag, þ.e. lög um opinber fjárlög, hafi verið mikið framfaraskref. Það er raunar þannig að í púltinu mínu á ég fjölrit, gefið út árið 1997, með ágætisyfirferð, skrifað af þáverandi fjármálaráðherra Friðriki Sophussyni, um rammafjárlagagerð og hvernig verklagið við það er. Það er lýsing á því verklagi sem skýrt kemur fram í þeirri fjármálaáætlun sem ég tala fyrir hér, þ.e. að hér erum við að skoða þróun málefnasviðanna, það eru áherslur þar inni fyrir málefnasviðin og áherslubreytingar eru sérstaklega teknar fram. Allt þetta er raunar gert til að bæta verklag og auka skýrleika og jafnframt að koma til móts við athugasemdir sem m.a. hafa komið innan úr stjórnsýslunni sjálfri en líka frá alþjóðastofnunum, eins og OECD og fjármálaráði. Ég á þannig erfitt með að taka afstöðu til umræðu sem ég get ekki séð að full innstæða sé fyrir.