156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans spurningu og ítreka það sem ég sagði áðan að fjármálaáætlunin inniheldur yfirlit yfir öll málefnasvið. Þar kemur allt fram um áherslubreytingar frá fyrri áætlunum sem þessi ríkisstjórn ætlar sér að ná fram. Ég er aftur dálítið hissa og hvet þingmenn, og þá jafnframt hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson, til að bera saman þetta efni sem sleppt var að birta í greinargerðinni í fyrra, (Gripið fram í.) samanborið við hvernig það leit út á árinu þar á undan og þar á undan og þar á undan, sem svona bakgrunn fyrir það hvernig menn geta dregið þá ályktun að þetta séu lykilupplýsingar.