fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð nr. 2 sem því miður upplýsir okkur ekki mikið meira um það hvernig við eigum að geta metið það hvernig þessi hreina rammafjárlagagerð — sem ég skil þannig að ráðherrarnir ráði bara hvernig þeir ráðstafa rammanum og við hér á hv. Alþingi höfum engin tækifæri til að meta hvort rammarnir sem hæstv. ríkisstjórn er að leggja til núna fyrir málefnasviðin muni standast og hvort það sé raunhæft. Við vitum það ekki. Það er það sem vantar að birta. Það var vissulega ekki birt í greinargerðinni með síðustu fjármálaáætlun en það var skýr, gagnsæ, rekjanleg leið að því hvar þú gast fundið upplýsingarnar, um eftir hvaða áherslum og markmiðum hver ráðherra ætlaði að vinna til að ná að vera innan þess ramma málefnasviðsins sem lagður er til hér í fjármálaáætlun. Þessar upplýsingar vantar okkur allar. Þetta er grunnurinn í einu af grunngildum fjármálaáætlunar og má finna í 6. gr. þar sem er talað um gegnsæi og rekjanleikann og þessi mælanlegu markmið. Og núna er talað um hreina fjármálaáætlangerð og hreina rammasetningu með því bara að taka allar upplýsingarnar frá þinginu. Það sem er undirstaða þessarar fjármálaáætlunar er aukin hagræðing. Hvernig er þessari hagræðingu skipt niður á málefnasvið? Af hverju eru þær upplýsingar ekki birtar? Er þessi ríkisstjórn ekki með plan eða kemur hún sér ekki saman um planið? Geta þau ekki sagt okkur á hvaða málefnasviðum þessi hagræðing á að koma og hvernig hún á að vera? Þessar upplýsingar vantar allar. Þær voru rekjanlegar í síðustu fjármálaáætlun en eru það ekki núna.