156. löggjafarþing — 27. fundur, 7. apr. 2025.
fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
264. mál
Forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans spurningu og vil vekja athygli hv. þingmanna á töflum sem fylgja með yfirliti hvers einasta málefnasviðs í áætluninni þar sem finna má — í þessu samhengi má t.d. benda á töflu 3.7, samanburð á þessari fjármálaáætlun og síðustu fjármálaáætlun. Þurfi hv. þingmenn aðstoð við túlkun slíkra samanburðargagna, sem þó hafa alltaf fylgt með þessum áætlunum, er ég bæði boðinn og búinn að veita það.