156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:04]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svar hæstv. ráðherra sýnir einmitt málefnaþurrðina, að benda bara á að það séu einhver gögn hérna og að við kunnum ekki að lesa og hann geti bara hjálpað okkur að gera það. Hann svarar ekki spurningunum. Hvernig eiga þingheimur og hagaðilar um allt land, sem eru að treysta og eru að vinna með ríkinu að alls kyns verkefnum, að vita hvort fjárlagaramminn — t.d. eins og um skóla, við skulum taka það sem dæmi. Ég tók nú aðhaldið sem dæmi áðan og hæstv. ráðherra ætlaði greinilega ekki að svara neinu um það. Förum þá í framhaldsskólana sem eru margir hverjir að bíða eftir stækkun á iðnnámshúsunum sínum til að fá inn fleiri iðnnema til að fylgja eftir markmiðum fyrri stjórnvalda. Ég þekki það ekki hjá þessum stjórnvöldum en alla vega kemur það ekki fram hér í fjármálaáætluninni hvort það eigi að byggja þessi verknámshús eða ekki. Það kemur bara fram að það sé aðhald á málaflokknum út af sameiningu menntastofnana. Það eru einu upplýsingarnar sem við höfum. Hæstv. ríkisstjórn hefur ítrekað sagt að nú sé allt breytt, það sé ný ríkisstjórn sem ætli að gera allt miklu betur en sú fyrri og er svo bara að vísa okkur á að lesa gögnin sem sú fyrri birti af því að hún hefur ekki komið sér saman um sín eigin gögn. Hún getur það ekki. Og hvernig eigum við að vita það núna, þegar við samþykkjum þennan ramma sem hæstv. menntamálaráðherra hefur verið skapað hérna, hvort það sé svigrúm til þess að stækka verknámshúsin í landinu eða ekki? Við bara sjáum það ekki. Það er ekkert talað um það í þessum markmiðum. Og hvað verður svo sagt við okkur í þessari hreinu rammafjárlagagerð í haust þegar fjárlögin koma? Það var ekki gert ráð fyrir þessu í rammanum í fjármálaáætluninni en við bara sögðum ykkur ekkert frá því.