156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:06]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans spurningu og velti aðeins fyrir mér hvort það geti verið að það sé einhver misskilningur á því hvert hlutverk fjármálaáætlunar er miðað við fjárlög. Fjárlög eru sem sagt þau lög sem Alþingi setur til að setja ramma um einstök útgjöld. (Gripið fram í.)Fjármálaáætlun er ætlað (Gripið fram í.) að gefa grófu myndin af þróun útgjalda innan málefnasviða. Ég velti fyrir mér hvort það geti verið að þessi misskilningur sé þarna úti. (GÞÞ: Getur verið að ráðherrann sé með allt niður um sig?)

(Forseti (IngÞ): Ég bið hv. þingmann um að vera ekki í samtölum við þann sem er í ræðustól.)