156. löggjafarþing — 27. fundur, 7. apr. 2025.
fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
264. mál
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans spurningu og ítreka það sem ég hef sagt hér áður, að það var í samráði við fjárlaganefnd sem þessar upplýsingar voru ekki í greinargerðinni í fyrra. Ég geri mér grein fyrir því, sem hér hefur ítrekað komið fram, að þær voru þingmönnum aðgengilegar á netinu, en það var af ástæðu sem þær voru felldar út úr greinargerðinni og ekki taldar það mikilvægar að þær ættu þar erindi.