fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það er beinlínis undarlegt að eiga hér þátt í þessu samtali þar sem hæstv. fjármálaráðherra síendurtekur það, sem liggur fyrir frá þeim sem í nefndinni voru að virðist ekki hafa verið raunin, þ.e. að þetta hafi verið gert í samráði við fjárlaganefnd síðasta þings eða eftir atvikum þar síðasta, síðasta var nú mjög stutt. Þeir fulltrúar sem þá sátu í þeirri nefnd og sitja enn í henni kannast ekkert við þetta, ekki neitt. Þetta er einhver furðuumræða. Á fimmtudaginn síðasta var gert hlé á þessari umræðu á meðan þingflokksformenn og forseti glöggvuðu sig á stöðu málsins. Umræðunni var frestað og í rauninni fór stjórnarandstaðan í þá vegferð að reyna að átta sig á hvort það væru einhverjar forsendur til að eiga þetta samtal á grundvelli þeirra gagna sem birtast hér í fjármálaáætluninni eins og hún liggur fyrir.
Ég verð að segja fyrir minn snúð að ég er bara mjög efins (Forseti hringir.) um að það sé staðan eftir að hafa legið yfir þessum helgina og síðan hlustað á svör (Forseti hringir.) hæstv. fjármálaráðherra hérna þar sem í besta falli er gert grín að því að stjórnarandstaðan geti ekki glöggvað sig á gögnum sem liggja ekki fyrir. (Forseti hringir.) Þetta er sérstök staða sem við finnum okkur í.