156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:17]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Þetta er mun stærra mál heldur en kannski einhverjum gæti virst. Það var þannig að við breyttum lögum um opinber fjármál. Um það var þverpólitísk sátt. Það var þverpólitísk sátt um að bæta vinnubrögð, auka gagnsæi og reyna að dýpka umræðuna um fjármálaáætlun og opinber fjármál. Nú er komin ný ríkisstjórn sem hefur haldið ég veit ekki hvað marga blaðamannafundi um nákvæmlega ekki neitt nema að hrósa sjálfri sér. Sjálfshólsríkisstjórnin kemur síðan hér inn með slíkt yfirlæti gagnvart þingmönnum að hæstv. ráðherra býðst til að kenna hv. þingmönnum að lesa, ætlar bara að hjálpa hv. þingmönnum að lesa.

Virðulegi forseti. Þetta er dapurlegt. Það er dapurlegt að við séum komin á þann stað að fyrstu skref þessarar ríkisstjórnar eru með þeim hætti að þau ætla að brjóta þá þverpólitísku sátt sem hefur verið um (Forseti hringir.) lög um opinber fjármál og þá þverpólitísku sátt um það að bæta vinnu við fjárlagagerð ríkisins.