fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég fylgdist með umræðunni hér í síðustu viku og hafði vænst þess að ríkisstjórnin myndi koma og gera betrumbætur á því plaggi sem var lagt fyrir fyrir helgi sem var engan veginn fullnægjandi, sérstaklega í ljósi þess að samkvæmt starfsáætlun þingsins átti þessi umræða fara fram síðar í þessari viku og það er enn tími til þess að undirbúa málið betur. Það er auðvitað umtalsverður munur á því hvort fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar sem vísaði í gögn sex ár aftur í tímann, var sett samhliða á netið um tölulegar upplýsingar og þau markmið sem væru undir hverju einasta málefnasviði eða núna þegar það kemur ný ríkisstjórn sem hefur lofað ýmsu en birtir hvorki markmið né tölulegar upplýsingar sem gerir það að verkum að þingið getur ekki verið að fylgjast með. Þingnefndin, fjárlaganefnd, hefur ekki gögn í höndunum. (Forseti hringir.) Svo er talað niður til okkar, að við kunnum ekki að lesa það. Ég ætla nú að skauta yfir það. En ég verð að segja eins og er, hæstv. forseti, að mér er til efs að sú umræða við fagráðherrann muni skila nokkru. Það er eins og að spila veiðimann. Við spyrjum: Áttu áttu? (Forseti hringir.) Og ef hann segir nei þá spyrjum við: Áttu níu? Af því að við vitum ekki hvað ráðherrann ætlar að gera. Við vitum það ekki. Það stendur ekki í plagginu.