156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:20]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Búin að vera mjög áhugaverð umræða hér, verð ég að segja, og áhugavert að hlusta á hæstv. ráðherra og hv. þingmenn fara yfir þetta mál hér, fjármálaáætlunina, og umræðurnar í tengslum við hana og í raun og veru þennan skort á upplýsingum sem ég benti nú á á fimmtudagsmorguninn. En mig langaði aðallega á þessum stutta tíma sem ég hef að einfaldlega upplýsa þingheim, vegna þess að hér hefur komið fram að fjárlaganefnd hafi verið tilkynnt um þetta breytta verklag á síðasta þingi. Það vill nú þannig til að ég er í fjárlaganefnd núna og var þar á síðasta þingi sömuleiðis og jú, vissulega var okkur tilkynnt um að það yrði breytt verklag. Það fólst einfaldlega í því að setja þessi gögn á netið samhliða því að við fengum fjármálaáætlun úthlutað. Þetta er ekki sama verklagið. Þetta var aldrei kynnt. Þetta er algerlega nýtt fyrir okkur, virðulegur forseti, og allt tal um annað (Forseti hringir.) er bara ekki rétt. Mér finnst rétt að koma hér upp og nefna þetta þannig að þingheimi sé ljóst (Forseti hringir.) hvað er rétt og hvað er rangt í þessu máli.