fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Það sem ríkisstjórnin býður okkur upp á hér er tómt blað. Ef við erum ekki með upplýsingarnar þá getum við ekki gagnrýnt. Þetta er ekki eins og þingið á að starfa. Að búa yfir upplýsingum veitir manni völd. Sá sem veit getur tekið ákvarðanir, gagnrýnt og aukið forskot sitt á þá sem búa ekki yfir upplýsingum. Þess vegna er mikilvægt og sanngjarnt í lýðræðissamfélagi að þeir sem stýra veiti upplýsingar um fyrirætlanir sínar þannig að minni hlutinn, almenningur og fjölmiðlar geti veitt raunverulegt aðhald, vegið og metið fyrirætlanir, skoðað upplýsingar, reiknað út og gagnrýnt. Það er eitthvað sem þessi ríkisstjórn hefur ekki boðið upp á.