156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:24]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég verð að segja það sem nýr þingmaður hér á hinu háa Alþingi að þá eru þessi vinnubrögð og þessi fjármálaáætlun sem hér er borin á borð — þetta lítur allt dálítið ankannalega út og einkennilegt að eiga að fara í gegnum þessar fjölmörgu síður og fjölmörgu mikilvægu málaflokka án þess að málin séu tilgreind til hins ýtrasta hvað fjárhagslegu þættina varðar, því við erum náttúrlega að ræða fjármálaáætlun. Það eru hérna náttúrlega gríðarlega margir málaflokkar sem maður hefur verið að reyna að setja sig inn í og er að reyna að henda reiður á hvað þýða í stóra samhenginu, t.d. í málaflokknum húsnæðis- og skipulagsmál. Við erum öll sammála því að húsnæðismálin eru afar mikilvægur þáttur í efnahagslífi þjóðar. Þar kemur fram, gott og vel, það eru útlistaðar ýmsar aðgerðir sem á að fara í en þar kemur fram að það eigi að ráðast í markvissar aðgerðir sem styðja við almenna íbúðakerfið og húsnæðisfélög án hagnaðarsjónarmiða. Það kemur fram neðar í kaflanum (Forseti hringir.) að það eigi að auka stofnframlög um 7,5 milljarða kr. á næsta ári en svo í heildarútgjaldarammanum er um lækkun að ræða, (Forseti hringir.) þá er um lækkun málaflokksins að ræða, þannig að þarna munar líklega um 10 milljörðum kr. (Forseti hringir.) Það er ótækt að reyna að átta sig á því hvað hér er verið að reyna að bera á borð og maður (Forseti hringir.) verður áskynja þess að svo á við um ýmsa hagaðila úti í bæ.

(Forseti (IngÞ): Forseti minnir á að ræðutími undir liðnum fundarstjórn forseta er ein mínúta.)