fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka fyrir þessa umræðu hér í dag. Ég held að það sé alveg ljóst af því hvað hefur verið að gerast í málaflokkum efnahagsmála, ef við horfum á rauða markaði, ef við horfum á tollastríð, að langtímahorfur næstu ára hafa breyst hratt og það þarf hugsanlega að endurmeta alla meginþætti efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Ég verð líka að ítreka mikilvægi þess að uppfylla skilyrði 5. og 20. gr. laga um opinber fjármál varðandi þessa skýru mælikvarða. Það á auðvitað við um öll málefnasvið fjármálaáætlunar og það er það sem er undir í þessum umræðum hérna í dag. Við vitum öll hversu mikilvægt það er, sama þótt við séum að horfa á stóru myndina, að hafa skýra mælikvarða. Það á við um okkur persónulega, það á við um ræktina, það á við um heimilisbókhaldið og að sjálfsögðu á það við um stóru málin, hvernig við erum að eyða almannafé. Við þurfum að vita mælikvarðana til að geta átt þessa umræðu hér í dag.