156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Þetta er liðurinn fundarstjórn forseta og ég verð nú bara að spyrja: Er það þannig að menn ætli sér að halda áfram? Er það svo að þessi ríkisstjórn komi hér — það er búið að hrekja allt það sem hæstv. ráðherra hefur sagt. Hér kom hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, sem var m.a. formaður í hv. fjárlaganefnd, og hann kannaðist ekkert við eitthvert samkomulag eða eitthvert upplegg sem hæstv. ráðherra er að kynna. Það er búið að hrekja það að það hafi byrjað í fyrra, þetta verklag. Það sem var gert í fyrra var að þetta var tekið út úr riti og sett á netið. Það geta allir skoðað lögin um opinber fjármál. Það geta allir skoðað greinargerðirnar. Það geta allir skoðað umræðuna. Er það svo, virðulegi forseti, að þessi hæstv. ríkisstjórn og forseti ætla að láta þessa hluti ganga áfram svona? Er þetta eitt af fyrstu verkum þessarar hæstv. ríkisstjórnar að taka þá pólitísku sátt sem hefur verið um lögin um opinber fjármál og henda henni út í hafsauga? Er það svo, virðulegi forseti?