156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:34]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það sem hefur verið að gerast hér síðustu daga er afskaplega dapurleg atburðarás, svo vægt sé til orða tekið. Það er dapurt að verða vitni að þessu nýja vinnulagi nýrrar ríkisstjórnar. Það er dapurt að verða vitni að þeirri virðingu eða réttara sagt óvirðingu sem ný ríkisstjórn sýnir þinginu hér við þessa vinnu sem fjármálaáætlun á að vera en er ekki. Ég tek fram: Sem á að vera en er ekki. Hér var búið að sammælast um lög um opinber fjármál. Það verklag tók gildi 2016 og hefur ríkt sátt um. Þess vegna er það afskaplega dapurlegt að verða vitni að því að ný ríkisstjórn skuli kasta þeirri sátt þingsins út í hafsauga. Ég ætla að fá að leyfa mér að gagnrýna það, virðulegi forseti, að þessi umræða eigi að fara fram með þessum hætti eins og lagt er upp með hér í dag.