fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Þetta er allt ósköp dapurlegt einhvern veginn. Hæstv. ráðherra Inga Sæland situr hér í sæti sínu og talar um að þingmenn stjórnarliða skorti lesskilning. Það er linnulaus gaslýsing sem gengur út á það einhvern veginn að teikna upp mynd, sem er ekki raunveruleg, um að þetta verklag hafi verið kynnt fyrir þingmönnum og nefndum og öðrum sem undir það heyra. Allt byggt á misskilningi en dellan er endurtekin linnulaust.
Ég held að við séum komin á þann stað að það sé til lítils slegist hér í þessari umræðu og rétt sé að hæstv. forseti leggi mat á hvort málið gangi eftir þá umræðu sem hér er klárast til hv. nefndar eða hvort samtal verði tekið við ráðherra um að skoða þetta að nýju og koma hér inn eftir páska. En í öllu falli þá munu (Forseti hringir.) þingmenn Miðflokksins stíga nú frá þessu fyrirhugaða samtali við fagráðherrana í ljósi þess hve grundvöllurinn (Forseti hringir.) er veikur sem hægt er að eiga það samtal á. Og það kæmi mér ekki á óvart stjórnarandstöðuflokkarnir allir meti þetta með svipuðum hætti í ljósi þess sem hér hefur komið fram og hér liggur fyrir (Forseti hringir.) og sérstaklega þess sem hér liggur ekki fyrir.