156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:37]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég er nú svo sem sama sinnis og hv. þm. Bergþór Ólafsson varðandi framhald þessarar umræðu en fyrst ég var nú einu sinni búinn að biðja um orðið þá held ég nýti mér það. Ég er hér kominn í kafla 12 sem snýr að landbúnaði og þarna er nú málefni sem er mér mjög hugleikið. Ég þekki tölurnar nokkuð vel en það er mér lífsins ómögulegt með þennan ramma sem hér liggur fyrir að reyna að átta mig á því hvað er fram undan varðandi þau verkefni sem eru boðuð í áætluninni. Og með þau gögn sem okkur er boðið hér upp á þá treysti ég mér engan veginn til þess að taka upplýsta umræðu við hæstv. atvinnuvegaráðherra þegar að því kemur, vitandi hvað fram undan er. Það eru búvörusamningar fram undan 2026 sem taka gildi 2027 o.s.frv. og það kemur ekkert fram um það í þeim gögnum sem hér eru í þessari ágætu bók.